Tíðindi

Loks einhver aðeins að hugsa um íslenska neytendur

  19/12/2012No Comments

Innanríkisráðherra reynir nú að fá gegnum þingið frumvarp þess efnis að eftirleiðis þurfi Íslendingar ekki að endurnýja vegabréf sín á fimm ára fresti heldur tíu ára fresti. Það eru góðar fréttir fyrir alla ferðalanga.

Landinn þarf vonandi eftirleiðis aðeins að endurnýja rándýr vegabréf sín á tíu ára fresti í stað fimm ára nú

Um rúmlega þrettán ára skeið hefur reglan verið sú að hver einstaklingur þarf að endurnýja vegabréf sitt á fimm ára fresti og það vita þeir sem mikið ferðast að það er fjarri því ódýrt pakki. Hvert einasta vegabréf kostar 7.700 krónur og helmingi meira ef þörf er á neyðarvegabréfi og það tekur meðaljón og gunnu tvær til fjórar stundir að vinna sér inn fyrir slíkri upphæð.

Sem er alveg galið fyrir pappírssnifsi með tölvukubb í plasti með nokkrum lífkennum hvers og eins. Vegabréf er í raun lítið frábrugðið kreditkorti sem geymir helstu upplýsingar en meðan bankar bíða í röðum eftir að gefa þér slík kort þarf sífellt að punga út feitum upphæðum fyrir vegabréfin. Sem nota bene kosta íslenska ríkið hingað komin ekki nema 3.300 krónur. Ríkisálagningin er því 133 prósent á hverju einasta vegabréfi og 360 prósent ef einhver þarf að mæta klukkustund fyrr hjá sýslumanni til að redda neyðarvegabréfi.

360 prósenta álagning yrði einhvers staðar talin til mafíustarfsemi.