Tíðindi

Dýrt í Noregi? Ekki ferðalög

  23/03/2012desember 21st, 2013No Comments

Það þarf ekki erlendar kannanir til að vita að fyrir Íslendinga sem þiggja laun í íslenskum krónum er Noregur eitt af allra dýrustu löndum heims til heimsóknar. Norska krónan sterk og laun almennt mun hærri þar en gerist hér. Engu að síður eru ferðalög ódýrari þaðan en héðan frá Íslandi.

Kannski er það að bera í bakkafullan lækinn að skoða verðlag á ferðalögum frá Noregi og bera saman við verðlag hérlendis. Þjóðirnar eiga jú fátt orðið sameiginlegt og himinn og haf milli lífsgæða þar og hér.

Engu að síður er það staðreynd að frá næsta vori keppa þrír aðilar á flugleiðinni Keflavík til Osló auk þess sem Icelandair flýgur til Stafangurs, Þrándheims og Bergen. Samkeppnin, ef eðlileg er, mun þýða lægri verð en ella og væntanlega sértilboð inn á milli.

Það er því kannski ekki svo vitlaust að kíkja aðeins á nokkur tilboð stærstu ferðaskrifstofa Noregs til að gefa lesendum hugmynd um hvað þar er í boði. Dæmin eru valin handahófskennt á tilboðssíðum ferðaskrifstofanna.

* Verð miðast við gengi íslenskrar krónu gagnvart norskri krónu klukkan 10:35 þann 23. mars 2012.

> Ferðaskrifstofan Ving býður vikuferð á fjögurra stjörnu hóteli í Búlgaríu við strönd Svartahafsins með morgunverði fyrir 61.386 á mann eða 122.772 fyrir parið.

> Ferðaskrifstofan Star Tours býður tvær vikur á fjögurra stjörnu hóteli á Alanya í Tyrklandi án máltíða fyrir 72.443 á mann eða 144.886 fyrir tvo saman.

> Ferðaskrifstofan Solia býður vikudvöl á Azoreyjum á þriggja stjörnu hóteli fyrir 78.906 krónur á mann eða 157.813 fyrir tvo. Solia er í eigu Primera Group sem einnig rekur Heimsferðir.

> Ferðaskrifstofan Apollo býður viku á þriggja stjörnu hóteli án fæðis á króatísku rivíerunni Makarska. Fyrir þau herlegheit skal greiða 77.490 krónur á mann eða samtals 154.981 fyrir tvo.

> Flugfélagið Norwegian býður mörg ágæt tilboð. Eitt þeirra er fimm daga dvöl á fimm stjörnu hóteli með morgunverði í hinni glæsilegu Dubrovnik í Króatíu Prísinn 76.626 á mann eða 153.253 fyrir tvo saman.

Til fróðleiks eru svo hér að neðan dregin fram dæmi frá tilboðssíðum íslenskra ferðaskrifstofa þann 23. mars 2012. Beinn samanburður er ósanngjarn enda áfangastaðir mismunandi en tölurnar segja sitt.

> Ferðaskrifstofan Heimsferðir býður í lok apríl þriggja daga borgarferð til Prag á þriggja stjörnu hóteli. Prís á mann 89.900 krónur eða samtals 179.800 fyrir tvo.

> Ferðaskrifstofan Ferð.is býður tíu daga ferðir til Gumbet í Tyrklandi í lok maí og gist á íbúðahóteli með engu innifalið. Einstaklingurinn greiðir 130.200 krónur og því tveir saman samtals 260.400 krónur.

> Ferðaskrifstofan Úrval Útsýn býður tvær vikur á Playa de Palma á Mallorca í lok maí á þriggja stjörnu hóteli með hálfu fæði fyrir 136.970 á mann eða samtals 273.940 tveir saman.