Tíðindi

Eru öryggisráðstafanir þess virði?

  23/03/2012janúar 9th, 2015No Comments

Er það raunin að allar þær stórauknu öryggisráðstafanir sem gerðar hafa verið á flugvöllum víða um heim, að Keflavíkurflugvelli meðtöldum, síðan í september 2001 hafi í raun gert illt verra og almennt ekki aukið öryggi í flugi?

Þetta er meðal þess sem rökrætt er um á vef breska tímaritsins Economist sem reglulega heldur rökræðukeppnir á netinu um hin ýmsu mál.

Sitt sýnist hverjum um stórhert eftirlit á flugvöllum sem hvergi er meira en í Bandaríkjunum eins og Íslendingar sem þangað fljúga þekkja mætavel. Að sama skapi er deilt um hvort þetta herta eftirlit sem kostar mikla peninga sem auðvitað flugfarþegar greiða fyrir á endanum með hærri farmiðaverði skili í raun nokkru.

Allnokkur dæmi eru um að fólk hafi komist gegnum allar mögulegar hindranir og jafnvel í gegnum líkamsskanna með vopn eða sprengiefni án þess að tekið hafi verið eftir. Að sama skapi hefur biðtími lengst til muna í öryggishliðum flugvalla og ýmsir segja farþega beinlínis niðurlægða með kröfum um að fara úr skóm, fjarlægja belti og takmarkanir á vökva sem fólk má hafa með sér.

Þegar þetta er skrifað er 86 prósent þátttakenda á vef Economist því sammála að stórhertar reglur hafi gert illt verra og séu ekki þess virði.