Tíðindi

Þrír dagar í jómfrúarflug easyJet

  24/03/2012janúar 9th, 2015No Comments

Það verður stór dagur á þriðjudaginn kemur þegar lágfargjaldaflugfélagið easyJet hefur formlega flug milli Keflavíkur og Luton í Englandi. Verður það þriðji aðilinn sem býður flug héðan til London auk Iceland Express og Icelandair og Wow Air hefur sig til flugs til sömu borgar í júní.

Leit á vef easyJet nú leiðir í ljós að engin flug héðan eru enn fullbókuð þó greinilega sé ásókn í miða. Er tiltölulega auðvelt að sjá slíkt því fargjöld hækka jafnt og þétt með fleiri bókunum og verður að leita aftur til október til að finna þeirra ódýrustu fargjöld enn til sölu. Er meira að segja enn hægt að bóka í jómfrúarflugið frá Keflavík á þriðjudaginn kemur og kostar miðinn þá 17.902 miðað við gengi krónu 24. mars klukkan 12:35.

Hafa skal í huga þegar bókað er með easyJet að ýmis kostnaður bætist við aukalega þótt flugfélagið auglýsi sérstaklega að öll gjöld séu innifalin í uppgefnu verði. Þannig kostar hver taska rúmar 2.800 krónur en greiða verður sérstaklega fyrir allan farangur fyrir utan eina handtösku. Sá kostnaður eykst um næstum helming sé það greitt á flugvellinum.

Þá er ennfremur aukagjald fyrir að bóka með kreditkorti sem telja má víst að stór meirihluti Íslendinga noti til að bóka með flugfélaginu. Það eitt kostar 1.171 krónu í viðbót við fargjaldið. Þá er enn ótalið svokallaður kostnaður, adminfee, sem er í dag 1.840 krónur á hvern miða.

Þannig þarf sá sem tekur með sér eina tösku undir 20 kílóum, greiðir með kreditkorti og ætlar í loftið á þriðjudaginn kemur í raun að greiða 17.902 krónur í stað 12.214 króna,72.99€, sem er uppgefið verð fyrir flugið. Er þar um að ræða flug aðra leiðina.

Engu að síður frábært að stórt og sterkt erlent flugfélag bætist í flóruna á Keflavíkurflugvelli og fara góðir tímar í hönd fyrir ferðaglaða íslenska neytendur.