Undanfarin ár hefur Búlgaría haldið titli sínum sem ódýrasti áfangastaður ferðamanna í Evrópu og almenn efnahagslægð í álfunni tryggt að þangað er stríður straumur fólks sem minna hefur milli handa. En nú kann að vera komið að endastöð.

Danir virðast hafa fengið upp í kok af vinsælum stöðum í Búlgaríu. Mynd Charles Roffey
Svo virðist vera sem vinsælustu áfangastaðir Búlgaríu hafi „Benidormað“ yfir sig.
Þá ályktun má draga af ástæðum þess að mjög hefur dregið úr áhuga á ferðum þangað af hálfu Dana en Politiken fjallaði nýlega um málið. Allar ferðaskrifstofur landsins bjóða ódýrar ferðir til Búlgaríu en 2014 og það sem af er þessu ári hefur dregið úr bókunum þangað um helming.
Ekki er þó um að ræða að Danir færi sig lengra suður á bóginn til Miðjarðarhafsins. Nei, áhugi á Austur-Evrópu er mikill og þar mestur á ferðum til landa á Balkan-skaganum.
Ástæðan sem danskir gefa upp fyrir dvínandi áhuga á Búlgaríu eru almenn læti og drykkjuskapur. Það er að segja; það er vonlaust eða vonlítið að njóta ferða til vinsælla stranda landsins nema diskótek, glingursalar og troðfullar strendur séu á óskalistanum. Sem sagt: Benidorm.
Það er nefninlega svo að yfirborðskenndir staðir verða fljótt þreyttir jafnvel þó ódýrt sé þar að vera. Við þurfum nefninlega öll aðeins meiri andlega örvun en áfengi, sól og strandlíf og aðeins meiri afslöppun inn á milli en slíkir staðir veita.







