Séuð þið ekki enn búin að negla niður sólarferð með vorinu er óhætt að halda yfir á vef Wow Air sem er að skjóta út flugferðum til Alicante og Tenerife í apríl og maí á lægra verði en venjulega.

Strax eftir páska er komist í sólina á Spáni á tilboðsverði
Sem þýðir að komist er til Alicante aðra leið með öllu niður í 13.998 krónur og undir 30 þúsund fram og aftur á tilteknum dagsetningum. Sem telst gott boð.
Sömuleiðis er Tenerife innan seilingar pungi fólk út 15.998 krónum sem er kostnaðurinn aðra leiðina á völdum dagsetningum sömu mánuði. Rétt rúmlega 30 þúsund því samtals fram og aftur. Einnig mjög frambærilegt verð.
Hversu vel þetta er í raun veltur dálítið á því hvort töskur þurfa að fljóta með. Ein slík bætir strax tíu þúsund krónum við gjaldið fram og aftur. Engu að síður mun lægra verð en aðrir bjóða sömu leiðir.
Svo er ráð að tryggja sér besta verðið á gistingu hér að neðan.







