Hægt væri að færa ágæt rök fyrir að ef ekki hefði verið Las Vegas hefði frægðarsól Elvis Presley aldrei risið jafn hátt og raun bar vitni. Hér í borg tróð kappinn upp á 900 tónleikum og arfleifð hans má sjá á hverju götuhorni þar sem eftirhermur spássera fram og aftur.

Fjöldi muna úr eigu rokkkóngsins fyrrverandi til sýnis í Vegas
Í Bandaríkjunum er áætlað að söfn tengd Elvis á einhvern hátt séu vart færri en tvö þúsund talsins og sextíu til viðbótar að minnsta kosti í Evrópu. Þau jafn misjöfn og þau eru mörg en engin spurning er um hvar mesta og besta safnið er að finna. Það er Graceland.
Nú ætla eigendur Graceland að draga þúsundir muna rokkkóngsins fram úr hirslum í Graceland og opna safn á þeim stað í Las Vegas þar sem kóngurinn kom oftast fram á sínum tíma. Ástæðan að einhverju leyti gróðavon en að einhverju leyti plássleysi í Graceland. Þar engan veginn hægt að sýna allt það drasl sem Elvis og fjölskylda sankaði að sér þó stórt sé.
Fullyrt er að á nýja safninu, sem staðsett verður í Westgate Resort & Casino, verði hátt í ein milljón hluta úr eigu Presley til sýnis. Það á að opna um mitt ár 2015 og því ráð fyrir heita aðdáendur að hefja söfnun.







