Eftirleiðis gæti orðið örlítið minna spennandi að njóta ferðar í því sem kallað er Auga London, London eye, hinu risastóra parísarhjóli við bakka Thames.

Rautt en ekki blátt. Auglýsingar þekja nú Auga London hátt og lágt. Mynd Coca Cola
Orsök þess sú að skipt hefur verið um aðalauglýsanda af hálfu eigendanna og nú blasir merki Coca Cola við alls staðar þar sem pláss er til á hjólinu. Það er aukinheldur orðið rautt á kvöldin í stað þess bláa litar sem notaður hefur verið frá upphafi.
Rauða hjólið hefur vakið upp deilur í London en það snertir ferðamenn sennilega minna. En öllu verra að vera að nú eru vagnarnir líka rauðir og merki drykkjarrisans áberandi í stað þess rólega hvíta litar sem áður var. Upplifunin verður því varla sú sama.







