Er þetta ekki draumur í dós? Að geta fylgst nokkuð grannt með farangrinum þínum eftir að þú tékkar inn töskur hjá næsta flugfélagi? Það er ekki bara draumur lengur.
Vandamálið er sannarlega til staðar. Flotta nýja ferðataskan sem þú keyptir fyrir Mallorca-ferðina reynist vera illa rifin þegar hún skilar sér af færibandinu. Ekki nóg með það heldur er dýra gleiðlinsan sem þú pakkaðir í töskuna horfin en flugfélagið sver af sér alla ábyrgð.
Á næsta ári kemur á markaðinn, gangi allt að óskum, nýtt tæki sem ætlað er að auðvelda ferðafólki að fylgjast með ef eitthvað kemur fyrir farangur þinn eftir að hann hverfur úr augsjá við innritun. Bagsentry heitir fyrirbærið og er nokkurs konar upptökutæki sem rekur slóð tösku frá A til B og gefur nokkuð nákvæma lýsingu á hvernig farið var með farangurinn í flugi. Sé taskan opnuð er það skráð. Ef kæruleysislega hefur verið farið með töskuna eða hún fengið högg er það líka mælt og skráð og ennfremur hægt að sjá hvort flugfélagið hafi kannski bara gleymt töskunni þinni í Keflavík þó flugfélagið segi það af og frá.
Tækið sjálft er lítið stærra en hefðbundinn USB-lykill sem festur er við farangur áður en lagt er af stað. Komi eitthvað upp á nægir að skoða upplýsingarnar á lyklinum þegar þú færð töskuna í hendurnar. Með þær upplýsingar sem þar koma fram er mun auðveldara að leita réttar síns ef stolið hefur verið úr töskunni eða hún skemmd á einhvern hátt.
Tækið vitaskuld handónýtt ef töskunni er stolið eða hún týnist endanlega en það er undantekning að það gerist. Mun oftar er stuldur úr farangri eða slæm meðferð það sem vandamálin snúast um.
Bagsentry kemur á markað vestanhafs með vorinu.








