Okkur vitandi eru engar opinberar tölur til um þetta vandamál hérlendis en miðað við umtal og kvartanir í sólarlandaferðum eiga ekki allir svo auðvelt með svefn í miklum hita. 

Frábær eyja heimsóknar Mallorca en getur verið að hitinn sé þar of mikið af hinu góða?

Frábær eyja heimsóknar Mallorca en getur verið að hitinn sé þar of mikið af hinu góða?

Það er ekki auðvelt vandamál að eiga við á stöðum þar sem næturhiti hangir í og yfir 20 gráðum sem er algengt á vinsælum sólarlandastöðum á borð við Benidorm, Kanarí eða Flórída og hvað þá enn sunnar á hnettinum.

Víst er loftkæling á öllum betri hótelum en þær græjur eins misjafnar og þær eru margar. Jafnvel á fullu blasti eiga þær stundum lítið við þrúgandi hitann. Í ofanálag virka þær ekki nema gluggar séu lokaðir og guð má vita hvaða bakteríur, skordýr eða annar viðbjóður leynist í gömlum lögnum á suðrænum hótelum.

Sem sagt, engin kjörstaða fyrir þá sem bágt eiga að sofna í miklum hita. Og sá eða sú sem sefur illa er eðli málsins samkvæmt ekki upp á sitt besta yfir daginn.

En eitt einasta ráð er þó alltaf óbrigðult og það er að ferðast ekki eða dveljast erlendis á allra heitasta tíma. Auðvitað gengur það ekki fyrir suma en þeir sem geta ættu fremur að taka frí sunnar í álfunni í apríl, maí eða október og nóvember en yfir sumartímann.

Við höfum tekið saman meðalhitastig, hátt og lágt, á nokkrum helstu áfangastöðum landans og munum birta hér á næstu dögum. Við ríðum á vaðið með Mallorca á Spáni og eins og sést glögglega á töflunni, tölur frá Accuweather, er ekki lítill hitamunur að næturlagi í apríl og ágúst. Það er HELMINGI heitara að meðaltali yfir hánótt í ágúst en það er í apríl. Hér skal hafa í huga að um meðaltalstölur er að ræða. Hitastig að næturlagi getur farið enn hærra en hér er sýnt.