Það er víðar en á Íslandi sem græðgi ríður ekki við einteyming. Eins og raunin hefur orðið hér í Reykjavík þar sem heimamenn eru að mestu útilokaðir frá leigumarkaðnum á vinsælum stöðum sökum þess að hægt er að græða töluvert hærri fjárhæðir á skammtímaleigu til ferðafólks ríkir sama vandamál í Berlín.
En ólíkt frammámönnum í Reykjavík sem salta mál í 70 nefndum sem svo skila misvísandi niðurstöðum svo ekkert gerist voru borgarfulltrúar Berlínar ekki lengi að grípa til aðgerða.
Þær aðgerðir beinast að þeim er auglýsa íbúðir sínar á hinum feykivinsæla Airbnb íbúðavef en sökum þess hve margir hafa farið út í þann bransa í Berlín hefur leiguverð þar í borg hækkað um sextán prósent á síðustu tólf mánuðum að því er Der Spiegel greinir frá og vitnar í hagstofuna þýsku.
Sú hækkun er hrein viðbót við miklar hækkanir á almennu leiguverði 2012, 2011 og 2010 og svo miklar að fimm fjölmenn leigusamtök hafa verið stofnuð í þeim tilgangi einum að sporna við þessari þróun. Það er nefninlega ekkert gaman að heimsækja Berlín ef þar eru engir Þjóðverjar.
Á þessu ári á að fækka leyfum þeirra er leigja út íbúðir sínar um tólf þúsund og annað eins á næsta ári og er vonast til að leiguverð í versta falli hækki ekki meira en í besta falli lækki aðeins á ný.
Berlín er þannig önnur stórborgin sem grípur til sértækra aðgerða gegn Airbnb. Áður hafði New York bannað starfsemi fyrirtækisins í borginni en það mál er að hluta enn fyrir dómstólum.








