Það eru gömul sannindi að gott er að deila með fólki góðum hlutum í lífinu. Þess vegna finnum við okkur tilknúin að skjóta meðfylgjandi myndbandi að ykkur.
Porto í Portúgal var að fá verðlaun sem „besti áfangastaðurinn 2014“ af hálfu European Best Destinations og kannski fáum við smá kredit fyrir að hafa mælt mikið og vel með staðnum 2009, 2010, 2011, 2012 og 2013.
Og svo vill til að Fararheill er að fara með hóp fólks um Porto og niður alla Portúgal til Lissabon í haust ef næg þátttaka fæst. Skjóttu á okkur pósti og fáðu fleiri upplýsingar.







