Okkur þykir svo gott að fá klapp á bakið að við gerum það stundum bara upp á eigin spýtur 🙂
Okkur þykir til dæmis ekki leiðinlegt að lesendum okkar finnst fjarska gaman að lesa pistla okkar, greinar og vegvísa. Svo mjög reyndar, sé mark takandi á alþjóðlegum vefmælingum, að ekki margir komast með tærnar þar sem Fararheill hefur hælana. Reyndar engir og langt í frá.
Takk fyrir samfylgdina hingað til. Við erum enn aðeins rúmlega þriggja ára og rétt að læra að labba….
Eigið yndislega helgi öll saman.
* Opinberar tölur vefmælingafyrirtækisins Alexa kl. 00.00 þann 14. febrúar 2014.
















