Lággjaldaflugfélagið easyJet tilkynnti í vikunni um nýja flugleið til Íslands og það frá ensku borginni Bristol á suðvesturhorni landsins. Aldrei skal kvarta yfir aukinni samkeppni í flugi en vandséð er að þessi flugleið per se nýtist landanum ýkja mikið.

Miðbær Bristol sem er nýjasti áfangastaðurinn í beinu flugi frá Íslandi

Miðbær Bristol sem er nýjasti áfangastaðurinn í beinu flugi frá Íslandi

Bristol sjálf er fín á enskan mælikvarða og töluvert líf hér í menningarlífinu en útgerð er hér stærsta atvinnugreinin. Þá er hún ekki illa í sveit sett eins og sjá má á meðfylgjandi korti.

Sérstaklega er þetta gósenland fyrir golfara því vellir eru hér um allar grundir. Þá er Bristol afar nálægt hinum sögufræga bæ Bath þar sem heitt vatn úr jörðu heillaði Rómverja forðum daga og trekkir milljónir ferðafólks enn þann dag í dag.

Fyrir alla aðdáendur knattspyrnu og Arons Gunnarssonar sérstaklega er þessi flugleið himnasending því Bristol er aðeins einu sundi frá Wales og ekki svo langt að fara til Cardiff þar sem Aron leikur listir sínar.

Einhverjum gæti þótt landslagið og strandlengjan heillandi en þá er það upptalið sem hér er mikils virði. Þá er Bristol töluverðan spöl frá London, rúmar tvær klukkustundir, svo það er varla hægt að segja að flug til Bristol geti nýst vel fyrir ferð til London.

Frá Bristol eru í boði stöku ferðir áfram erlendis og meðal annars beint til Marrakesh í Marokkó sem Fararheill mælir eindregið með.


View Bristol og nágrenni in a larger map