Pálmi Haraldsson, eigandi Úrval Útsýn, virðist loks hafa kveikt á þeirri peru að ákveðna lágmarksþjónustu verður að veita til að vera samkeppnishæfur á markaði. Eftir því er tekið að ferðaskrifstofa hans er loks farin að veita umtalsvert betri upplýsingar um áfangastaði á vef sínum.

Mun betri upplýsingar fást nú um áfangastaði Úrval Útsýn en raunin hefur verið hingað til

Mun betri upplýsingar fást nú um áfangastaði Úrval Útsýn en raunin hefur verið hingað til

Hvort það er tilviljun ein að vefur ÚÚ tekur breytingum til batnaðar í kjölfar mikillar gagnrýni Fararheill skal ósagt látið þó vísbendingar séu í þá áttina. Í raun má furðu sæta að þessi gamalgróna ferðaskrifstofa átti sig ekki á því fyrr en árið 2013 að það eru breyttir tímar í ferðageiranum.

Gallinn sá hins vegar að góð upplýsingagjöf er aðeins lágmarkskrafan og þetta því seint í rass gripið. Öllu meiri kröfur eru gerðar um ferðalög þau er ÚÚ býður upp á og eins og Fararheill hefur líka ítrekað bent á er smurt nokkuð duglega ofan á verð á mörgum þeirra ferðum þrátt fyrir afsláttarkjör á flugi og gistingu sem ferðaskrifstofunni býðst umfram Jón og Gunnu.

En batnandi fólki og fyrirtækjum er best að lifa. Gott mál að Úrval Útsýn veiti greinargóðar upplýsingar og svo getur fólk flett yfir á Fararheill.is til að fá það sem á vantar.