Sífellt eykst fjölbreytni í ferðaúrvali erlendis þó hér á klakanum standi hlutirnir meira og minna í stað. Nú hafa nokkur fyrirtæki tekið upp á því að bjóða flug milli staða vestanhafs í einkaþotum á verði sem er langt undir því sem gerist og gengur.
Í Bandaríkjunum er ný þjónusta að ryðja sér töluvert til rúms. Lágfargjaldaeinkaflug ef svo má að orði komast því ekki er það ýkja ódýrt miðað við allt og allt.
Hugmyndin því að baki að í stað þess að eingöngu vellauðugir einstaklingar ferðist um í hálftómum einkaþotum séu sæti í vélum sem fara til og frá helstu borgum landsins seld eitt og sér. Þetta hefur tekist svo vel að verð á sæti milli tveggja stórborga í einkavél er nú komið niður í svipað verð og sæti á viðskiptafarrými hjá stærri þarlendum flugfélögum.
Ágóðinn er umtalsverður fyrir þá sem efni hafa því einkaþoturnar eru oft fljótari í förum en stærri vélar. Engin þörf að bíða í röðum á flugvöllum eða mæta með tveggja til þriggja stunda fyrirvara á völlinn. Fyrir utan auðvitað að enginn amast við því þótt þú leggir sætið aftur og ekki þarf að troðast neitt til að komast á salernið.
Jumpjet er eitt slíkt fyrirtæki og segir forsvarsmaður þess við USA Today að vinsælasti áskrifarpakkinn kosti 270 þúsund krónur á mánuði en sá gefur færi á alls tíu ferðum fram og aftur á tólf mánaða tímabili. Það er töluvert undir því sem hingað til hefur þurft að greiða fyrir afnot af einkaþotum en auðvitað enn nokkuð fjarri því að vera á allra færi sem er þó draumur eigenda Jumpjet.








