Ahhh… Maldive-eyjur. Hversu yndislegt að busla í flæðarmálinu á þeim eyjum og rölta svo tíu skref í ylvolgum sandinum beint í ljúffenga kokteila og ferska nýtínda ávexti. Og hversu mikið yndislegra ef verðið er viðráðanlegt.
Sé fólk með góða biðlund og fýsi að upplifa nokkra daga í sönnum lúxus á Maldive-eyjum væri kannski ráð núna að kynna sér nýtt tilboð ferðaskrifstofu Ethidad flugfélagsins.
Þar er um að ræða eina tíu daga ferð frá London í júní á næsta ári en ferðinni er fyrst heitið til Abu Dhabi í Sameinaða arabíska furstadæminu þar sem fólk fær fimm stjörnu pakkann í þrjá daga áður en ferðinni er haldið áfram til Maldive-eyja þar sem gestir eyða heilli viku á lúxushótelinu Full Moon Resort.
Alla jafna er hvorki auðvelt né ódýrt að komast til Maldive. Lúxushótelkeðjur hafa komið sér fyrir á mörgum helstu eyjanna og selja þjónustu sína ekki ódýrt. Til að gefa lesendum hugmynd um kostnað má geta þess að ferðaskrifstofan Vita bauð um tíma upp á vikulangar sérferðir til sama hótels og hér um ræðir á Maldive fyrir rúmlega 420 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman.
Ethidad hins vegar er að bjóða þennan tvöfalda pakka nú fram til 20.október fyrir 255 þúsund krónur frá London eða rúmlega fimm hundruð þúsund fyrir parið. Plús flugkostnað til og frá London auðvitað.
Ekki ódýrt en heldur ekki dýrt miðað við slíka ferð á framandi slóðir. Í slíkri ferð má slá þrjár flugur í einu höggi; versla í London fyrir eða eftir brottför, sjá hinn undarlega heim Abu Dhabi þar sem peningar bókstaflega leka af hverju strái og svo elska og njóta undir heitri sólinni á Indlandshafi.








