Það er súrara en frá þurfi að segja að bóka flugmiða út í heim, setjast svo sallaróleg niður og bíða spennt til þess eins að komast að því með tíð og tíma að flugið hafi nú verið fellt niður eða fært sísona.

Einhver sjáandi starfar nú hjá Wow Air virðist vera

Einhver sjáandi starfar nú hjá Wow Air virðist vera

Það gerir flugfélag sem segist flugfélag fólksins án þess að hugsa sig tvisvar um ef marka má nýlega færslu á fésbókarsíðu Wow Air. Þar segir maður frá því að löngu bókuð ferð sín í janúar 2014 hafi verið felld niður „vegna ófyrirsjáanlegra orsaka“ eins og sjá má að neðan.

Viðkomandi aðili fær ekki aðeins að vita að flug hans frá Íslandi þann 14. janúar sé úr sögunni heldur og flug hans heim aftur þann 18. janúar.

Vel má vera að Þórhallur miðill sé farinn að vinna hjá Wow Air og sjái eitthvað hroðalegt í hugarfylgsnum sínum varðandi flug þessa daga en að öðrum kosti er vandséð hvernig ferðaskrifstofan getur sagt að flug sem á að fara í loftið í janúar á næsta ári falli niður vegna „ófyrirsjáanlegra orsaka.“ Þetta er jú tæpum fjórum mánuðum fram í tímann.

Líklegra er, og nú er Fararheill að geta í eyðurnar, að áætlanagerð Wow Air sé vel á eftir áætlun. Fyrirtækið hefur ekki mikið svigrúm til að leika sér með og flug til Kaupmannahafnar á þessum dögum í janúar hefur orðið úti þegar þeirri vinnu lauk.

Neytendalög er nokkuð óskýr hvað svona breytingar varðar með löngum fyrirvara en þar sem viðkomandi var búinn að bóka bílaleigubíl, sumarhús og annað nauðsynlegt hlýtur það að vera í verkahring Wow Air að greiða þann kostnað nú þegar allt er breytt.

Kvörtun mannsins hvers flugi var breytt sísona með kjánalegum afsökunum

Kvörtun mannsins hvers flugi var breytt sísona með kjánalegum afsökunum