Ferðaskrifstofan Úrval Útsýn auglýsir nú sérstaka þriggja nátta aðventuferð til Berlínar í desembermánuði. Sem er vel því Berlín í desember er jafn frábær og hún er aðra mánuði og jafnvel lítið eitt betri. En mikil ósköp er fararstjórn dýr í þeirri ferð.
Ferðin, 5. – 8. desember miðast við flug með Icelandair, íslenskri fararstjórn og þrjár nætur á fjögurra stjörnu hóteli. Ferðir til og frá flugvellinum eru aukalega einhverra hluta vegna og allar „skoðunarferðir“ kosta aukalega. Prísinn fyrir herlegheitin miðað við tvo saman alls 173.800 krónur.
Slík auglýsing vekur áhuga hjá öllu viti bornu fólki með púls, eða ætti að gera það enda stemmningin í borgum Þýskalands um jólahátíðina sérdeilis yndisleg. Þrátt fyrir kuldatíð er sólríkt bros gjarnan á vörum fólks og ekki langt í gaman og glettni þegar smá jólaglögg er kominn í mannskapinn.
Ferðin er samt í dýrari kantinum að okkar mati og kostar parið tæplega 58 þúsund krónur hvern einasta dag. Þá á eftir að borða hádegis- og kvöldverð og drekkja nokkrum þýskum öllurum fyrir utan að kíkja í H&M aðeins. Fyrir utan þá staðreynd að það er auðvelt mál að finna þá jólamarkaði sem bragð er að í Berlín og ekki þarf neinn fararstjóra til. Ekki er reyndar ljóst hvað umræddur fararstjóri á að gera því „skoðunarferðir“ kosta jú aukalega. Hann er kannski bara til að faðma fólkið þegar það mætir á hótelið.
Í öllu falli er auðsótt mál að stúta Úrval Útsýn hér og það gerir Fararheill með því að bóka far með Wow Air til Berlínar og frá á sömu dögum fyrir 86.296 krónur fyrir tvo. Rjúka svo þráðbeint á hótelbókunarvél Fararheill og finna fjögurra stjörnu hótel á þessum sama tíma. Við finnum strax California Am Kurfursdendamm á 42 þúsund og við finnum Azimut Hotel Berlin Kurfurstendamm á 26.849 krónur fyrir þrjár nætur.
Það þýðir að við förum til Berlínar og njótum þess sama og farþegar Úrval Útsýn á sama tíma á sama stað fyrir alls 113.145 krónur. Við harðneitum að borga 60.645 krónur fyrir faðmlag frá fararstjóra í hótellobbíinu.
* Hafa skal í huga að verð breytast ört bæði hjá Wow Air sem og hótelbókunarvél Fararheill. Verð rétt kl. 22 þann 30. september 2013.
Auglýsing Úrval Útsýn:
Billegasta fjögurra stjörnu hótel þokkalega miðsvæðis sem við fundum við leit:










