Flugfélagið Primera Air hefur smátt og smátt verið að auka veg sinn hér á landi og þá fyrst og fremst sem flugfélag Heimsferða en bæði fyrirtækin eru í eigu sama aðila.  Nú virðist hins vegar sem flugfélagið ætli sér stærri bita af íslensku kökunni og hefur opnað glænýjan vef þar sem fram kemur að Primera býður upp á nokkrar nýjungar í flugi í framtíðinni.

Nýjungar er kannski sterkt til orða tekið en í boði er til dæmis að sérpanta hollan mat fyrir flug með félaginu, öll börn fá matarpakka frítt í ferðum flugfélagsins og þá er í boði að leigja spjaldtölvu um borð til að stytta sér stundir ef samferðafólkið er í leiðinlegri kantinum.

Primera hefur verið vel samkeppnisfært hingað til og inn á milli skotið inn frábærum tilboðum eins og flugi aðra leið til Osló fyrr í vetur á aðeins 9.900 krónur sem er eðalverð í alla staði. Best er kannski líka að flugfélagið tekur ekkert sérstakt gjald fyrir innritaðan farangur upp að 20 kílóum eins og Wow Air flugfélag Skúla Mogensen.

Það er því kjörið að gera samanburð þegar færi gefst og fljúga skal til Alicante en þangað fljúga bæði Wow Air og Primera Air.