Dómstóll í New York hefur svo um skipað að ólöglegt sé fyrir Jón og Gunnu að leigja út herbergi eða sófa gegnum hinn vinsæla vef Airbnb.

Boð og bönn í New York

Boð og bönn í New York

Þetta er þung áfall fyrir Airbnb sem er einhver heitasta stjarnan í ferðabransanum og hefur verið undanfarin þrjú til fjögur ár en þjónusta Airbnb gengur út á að íbúðaeigendur geti leigt tímabundið ferðafólki íbúðir eða herbergi og fái greitt þokkalega fyrir. Ferðalangar fá í staðinn fínar vistarverur fyrir töluvert lægri upphæð en annars.

Vinsældirnar hafa verið langt fram úr vonum og fyrirtækið nú metið á 112 milljarða dollara aðeins fimm árum eftir stofnun. Eru til að mynda hundruðir Íslendinga sem notfæra sér þjónustuna og láta vel af.

En í New York ráða peningaöflin og stórfyrirtækin, þar á meðal risa-hótelkeðjur, og þau hafa fengið í gegn að íbúðaleiga í því fylki er óheimil og há sekt við brotum. Sem þýðir að séu Íslendingar á leið til borgarinnar verða þeir að láta sig hafa að greiða þær fúlgur sem það kostar að taka herbergi á hóteli eða gistihúsi.