Verð, verð og verð er það sem skiptir Íslendinga mestu máli þegar skipulagðar eru utanlandsferðir þessi dægrin samkvæmt niðurstöðum könnunar Fararheill.is. Sjötíu prósent segja það aðalatriðið.
Fararheill sendi spurningalista um hitt og þetta varðandi utanlandsferðir á útvalinn 80 manna hóp lesenda sinna og hefur fengið svör frá 68 þeirra. Niðurstaðan er afgerandi. Verð skiptir velflesta mestu máli og kannski segir sitt um að landinn almennt er ekki kominn upp úr þeirri lægð sem hér hefur verið undanfarin ár.







