Allt hefur verið vitlaust á bloggi og netsíðum síðustu sólarhringa eftir að kínverskur unglingur á ferð um eitt af aldagömlum hofum Egyptalands tók sig til og krotaði á nokkrar þær steinmyndir sem þar var að finna. Foreldrar drengsins létu sem ekkert væri og málið komst ekki upp nema fyrir þá sök að strákasninn birti mynd af ódæði sínu á kínverskri tíst-síðu.

Útkrotuð steinmyndin í egypska hofinu en óvíst er hvort hægt verður að fjarlægja krotið. Mynd weibo

Útkrotuð steinmyndin í egypska hofinu en óvíst er hvort hægt verður að fjarlægja krotið. Mynd weibo

Viðbrögðin létu ekki á sér standa enda ókleift að þrífa krot stráksa af aldagamalli veggmyndinni og krotið því komið til með að verða fyrir sjónum þeirra milljóna sem skoða egypsku hofin næstu misserin.

Þetta er aðeins síðasta atvikið af mörgum þar sem kínverskir ferðamenn hafa komist í fréttir fyrir fráleita framkomu á ferðalögum sínum en svo mikið er um slíkt að sjálfur forsætisráðherra landsins hefur sérstaklega hvatt sitt fólk til að sýna stillingu og kurteisi á ferðalögum.

Frægt er dæmi frá Ítalíu um kínversku konuna sem lofaði að kaupa fullt af dýrum veskjum svo lengi sem hún fengi að reykja sígarettu í friði inni í verslun. Verstu flugdólgar heims eru sagðir fullir Kínverjar og hjá Hong Kong Airlines hafa flugþjónar fengið sérstaka þjálfun í kung-fu til að eiga við slíka farþega.

Líklega er ástæðan sú að Kínverjar eru rétt að byrja að læra að ferðast og líkt og Íslendingar fyrir 20 árum var varla nein ferð neitt án þess að áfengi kæmi við sögu og það helst strax sex um morguninn í flugstöðinni.