Við ætluðum nú reyndar ekki að trúa okkar eigin augum. Tveggja vikna dvöl á alveg ágætu hóteli með morgunverði á hinni geysivinsælu eyju Phuket í Tælandi fyrir rétt rúmar 150 þúsund krónur á mann, 6998 DKK, miðað við tvo saman. Það er bara brilljant verð með stóru Bé-i.
Ekki þarf að spyrja að því að slíkt tilboð rekur ekki á fjörur hér á Fróni heldur er þetta díll frá dönsku ferðaskrifstofunni Top Tours og gildir um ferðir frá 8. ágúst og fram til 17. október en þá hækkar verðið allnokkuð. Til Kaupmannahafnar þarf því að leggja leið áður en þessi túr verður farinn og það setur 30 til 40 þúsund krónur ofan á verðið.
Þetta er engu að síður ennþá fjandi gott og sérstaklega þegar haft er í huga að verð á flugi eingöngu til Tælands með haustinu finnst ekki undir 106 þúsund krónur á mann þegar þetta er skrifað.







