Flugfélag Íslands, dótturfélag Icelandair, hefur lengi vel boðið landanum ferðir til Grænlands og er það vel. Miður er hvað lendingagjöld á Grænlandinu góða virðast óheyrilega mikið dýrari en annars staðar.
Flugfélagið flýgur þetta sumarið til nokkurra áfangastaða á nágrannaeyjunni til vesturs en fyrir hóp fólks er Grænland sífellt athyglisverðari áfangastaður og líklegt er að sú verði þróunin áfram. Þarna er um einokunarflug að ræða því fyrir utan að fljúga frá Kastrup í Danmörku er ekki svo hlaupið að því að komast til Grænlands nema smygla sér um borð í fiskidall.
Annaðhvort er flugfélagið að nýta sér þá einokunaraðstöðu með feitri smurningu á verðið ellegar lendingargjöld í Grænlandi eru út úr öllu korti. Hvernig annars má það vera að fjögurra stunda flug fram og til baka í júlí til Kulusuk kostar 133 þúsund krónur báðar leiðir þegar tveggja stunda flug fram og aftur til Egilsstaða fæst alla jafna á 30 til 40 þúsund krónur fyrir fullorðinn einstakling? Og til eru þeir sem segja fargjöldin til Egilsstaða algjört okur.
En vitaskuld er þetta ákveðna verð til Kulusuk í svokölluðum fríðindasætum og þeim fylgir frítt kaffi og vatn. Ekki amalegt.
Mynd Hlynur2006








