Hin árlega janúarsala breska flugfélagsins British Airways er hafin þótt enn sé ekki kominn janúar. Skera þeir niður verð á völdum leiðum sínum um allt að 40 prósent frá hefðbundnu verði og er gildistími miðans mismunandi eftir áfangastöðum og tegundar miða. Þarf þó að kaupa miðann fyrir lok janúar.
Er ekki aðeins um flugferðir að ræða heldur er einni slegið nokkuð af verðum á sumarleyfisferðum. Hafa ber þó í huga að British Airways öllu jöfnu eru ekki þeir ódýrustu og í sumum tilfellum eru þeir enn dýrir þó slegið sé duglega af verðinu.
Sjá tilboðssíðu BA hér.






