Fólk má halda það sem það vill en augljóst virðist þeim er búa yfir heilbrigðri skynsemi að al Kaída hefur sannarlega tekist að gera lífið ömurlegt fyrir flugfarþega í um átta ár nú og í dag hertu bandarísk yfirvöld til muna strangar reglur sínar hingað til.
Þurfa nú allir sem til Bandaríkjanna ætla að mæta í síðasta lagi þremur klukkustundum fyrir brottför á flugvöllinn og fara gegnum enn harðara öryggiseftirlit en hingað til.
Finnst mörgum nóg um og varð enda töluverð fækkun farþega til Bandaríkjanna eftir að stórhertar reglur þar tóku gildi eftir 11. september 2001.
Ekki aðeins þurfa væntanlegir ferðamenn þangað að mæta með góðum fyrirvara heldur einnig að halda kyrru fyrir í sætum sínum klukkustund fyrir lendingu í Bandaríkjunum samkvæmt upplýsingum Reuters fréttastofunnar. Þá verður ekki leyfilegt að hafa handfarangur annars staðar en í geymsluhólfum héðan í frá.
Kannski tími sé til kominn að halda annað í fríinu.
Frétt Reuters hér.






