Tíðindi

Helmings afsláttur hjá Lastminute.com

  29/12/2009maí 17th, 2014No Comments

Bretar eru ekkert að tvínóna við hlutina. Verslanir í landinu hefja útsölur ekki seinna en annan í jólum og ferðaskrifstofur og flugfélög eru nú farin að bjóða alvarlega afslætti á ferðum og sumarleyfum. Í dag hófst sex daga útsala hjá Lastminute.com og eru stöku ferðir þeirra á helmings afslætti fram til 4. janúar.

Um alls kyns ferðir er að ræða og reyndar vörur líka en engum blöðum er um að fletta að töluverður afsláttur er í boði frá hefðbundnu verði sem þykir vera í lægri kantinum.

Sjá tilboðssíðuna hér.