Kylfingar þessa lands skipta þúsundum. Það er algeng ályktun að flestir þeir sem það stunda eiga einhverja seðla á bankabókum því sportið er dýrt og þrátt fyrir að helstu golfklúbbar landsins hækki verð sín árlega um 5 til 15 prósent heyrist sjaldan múkk frá neinum.
Það er kannski þess vegna sem ferðaskrifstofan Úrval Útsýn hendir hiklaust heilli Sahara í augu viðskiptavina sinna enda öruggt í ljósi sögunnar að enginn segir neitt heldur borgar bara reikninginn og brosir blítt.
Þarna er verið að vísa til einnar þeirra ævintýraferða sem svo eru kallaðar á heimasíðu ÚÚ. Undir því ágæta heiti má finna „Golfferð til Tælands.“ Deila má um hversu mikil ævintýraferð golfferð til Tælands er en látum það liggja milli hluta. Gallinn bara sá að alls ekki er um neina golfferð að ræða.
Auglýsing ÚÚ hljóðar svo:
Við kappkostum að hafa ferðina eins ódýra og þægilega og kostur er. Eitt af því er að hafa golfpakkann ekki innifalinn í verðinu. Þar með ræður fólk því sjálft hvort það vill spila lítið eða mikið og hvaða dag vikunnar það vill spila.Kerfið okkar í þessari ferð er þannig að þeir sem leika golf gerast meðlimir í Pattaya Sportklúbbnum eftir komuna til Thailands. Því fylgir afsláttarkort sem veitir góðan afslátt á um 20 golfvelli við Pattaya. Það verður farið skipulega í golf þrisvar sinnum í viku og hver og einn sem mætir í golfið þá greiðir sinn hluta í golfinu, golfbílnum og akstrinum til og frá vellinum hverju sinni. Gerir einfaldlega upp á golfvellinum í hvert sinn sem leikið er.
Fararstjórinn sér um að panta golfið og aksturinn og auglýsa stað og stund með góðum fyrirvara.
Þeir sem vilja spila oftar en þessa 3 daga í viku geta það að sjálfsögðu og mun fararstjórinn sjá um þá hlið.
Verðið á golfinu í ferðinni getur verið misjafnt. Það fer allt eftir því hvaða völlur er spilaður og hvað langt er farið á hann. Algengustu verð eru á bilinu 900 til 1500 bött.(3.600 – 6.000 krónur). Það má finna ódýari velli en það og einnig mun dýrari – vel yfir 3000 bött kosta þeir dýrustu. Við höldum okkur við þá ódýrari. Golfbíll kostar 500 til 600 bött ( 2.000 – 2.400 kr.) – tveir eru um hvern bíl sem gerir 250 til 300 bött á mann (1.000 – 1.200 kr.)
Aksturinn til og frá golfvelli er á bilinu 250 til 300 bött ( 1.000 – 1.200 kr.) á mann. Fer eftir hvað margir fara í golfið viðkomandi dag og á hvaða velli er farið – kílómetragjald. Til að átta sig á verðlaginu á golfinu í kringum Pattaya er hægt að fara inn á heimasíðu PSC sem er pattayasports.org og smella þar á GOLF og fara þar inn á GOLFDISCOUNT. Þar má sjá öll verðin og reikna dæmið til enda. Einfaldast er samt að reikna með að golfið með föstum kostnaði verði á bilinu 1500 til 2000 bött á dag ( 6.000 – 8.000 kr.). Þjórfé er ekki innifalið í þeirri upphæð.
Það er semsagt ekkert golf í „golfferðinni“ til Tælands.
Geta viðskiptavinir valið hvort þeir dvelja 3,4 eða 6 vikur. Ekki er í boði á ferðast einn þannig að aðeins tveir saman eða fleiri eiga þess kost að vera með. Innifalið í verði er flug, gisting og flugvallaskattar. Millilent er í Amsterdam á leið út og heim aftur og því ekki um beint leiguflug að ræða.
Miðað við þær forsendur sé gist 3 vikur miðað við ódýrasta kostinn kostar ferð á mann miðað við tvo 346.220 krónur. Samtals fyrir tvo þá 692.440.
Sé mið tekið af því að flugmiða fram og til baka milli London og Bangkok má víða fá kringum hundrað þúsund krónur er strax orðið ljóst að 346 þúsund á mann er í dýrari kantinum.
En það á eftir að bæta við golfinu og við 21 dags dvöl er eðlilegt að áætla að golfáhugafólk vilji fara eigi sjaldan en tíu skipti að lágmarki. Þá vísast í tilkynningu ÚÚ að gera megi ráð fyrir að ódýrasti hringur kosti 6 þúsund krónur plús þjórfé fyrir kylfuberann sem er þúsund krónur að lágmarki. Hver hringur kostar þá 7 þúsund. Tíu slíkir gera þá 70 þúsund og þar sem tveir eru saman er heildarkostnaðurinn 140 þúsund krónur. Þá er ekki talinn kostnaður við drykki og mat í klúbbunum.
Kostnaður per einstakling er þannig ekki lengur 346 þúsund á mann heldur 416 þúsund. Eða öllu frekar 822 þúsund fyrir tvo.
Átta hundruð tuttugu og tvö þúsund krónur fyrir tíu daga golf á slökustu völlum Pattaya í Tælandi. Enginn matur er innifalinn í ferðinni og fráleitt annað en matur og meðlæti einn dag fyrir tvo kosti undir tíu þúsund krónum. Þá er óhætt að bæta við tæpum tvö hundruð þúsund krónum alls fyrir mat og drykk.
Ein milljón tuttugu og tvö þúsund krónur kostar ferðin þá og er þá miðað við ódýrasta mátann í 21 dags ferðalagi.
Eðlilegt?






