Illu heilli eru margir þarna úti sem lofa risavefinn Tripadvisor og brúka helst ekkert annað þegar finna skal gistingu erlendis. Nú hefur loks verið staðfest að stjórnendur eyða reglubundið út öllum viðvörunum um ofbeldi og viðbjóð sem viðgengst á hinum og þessum gististöðum.

Algjörlega handónýtt merki ef þú spyrð okkur.
Fyrir vitiborið fólk á það ekki að koma á óvart. Tripadvisor græðir enga peninga á að leyfa öllum að segja sannleikann um hina og þessa gististaði heims. Þvert á móti græða þeir aðeins peninga á því að lofa og lúta í gras fyrir hótelum heimsins enda selja þeir sjálfir gistingu og fyrirtækið fær enga plúsa frá hóteleigendum fyrir að leyfa næsta Nonna og næstu Gunnu að blaðra niðrandi um hinn og þennan staðinn. Jafnvel ekki þó viðvaranir fólks séu 100% sannar.
Og það hafa stjórnendur Tripadvisor tekið alvarlega. Svo alvarlega að þeir henda umsvifalaust út velflestum, ef ekki öllum, umsögnum þar sem kvartað er yfir ofbeldi og viðbjóð sem viðgengst víða um heim þar sem ferðafólk gistir.
Hafi einhver efast fékkst loks sönnun fyrir stuttu þegar dagblaðið Journal Sentinel í Bandaríkjunum birti greinaflokk þar sem í ljós kom að Tripadvisor eyðir miskunnarlaust út öllum umsögnum gesta um alvarleg brot á borð við rán, árásir eða nauðganir á hótelum heimsins.
Sem dæmi þá reyndi kona ein bandarísk níu sinnum að vara aðra við tilteknu hóteli í Mexíkó sökum þess að þar var henni sjálfri nauðgað af öryggisverði og fékk eðli máls samkvæmt enga hjálp frá starfsfólki hótelsins. Níu sinnum hafnaði Tripadvisor umsögn hennar og eyddi út. Það var ekki fyrr en blaðamaður New York Times hafði loks samband sem forráðamenn Tripadvisor viðurkenndu sök sína.
Eins og það sé ekki stórmál að koma því á framfæri að öryggisverðir vinsæls hótels dundi sér við nauðganir þegar sá gállinn er á þeim!!!
Enginn vafi leikur á að ritskoðun Tripadvisor er svo stalinísk að það er varla mark á takandi. Hvað annað hafa þeir sópað undir teppi undanfarin ár sem gæti komið ferðafólki vel að vita?







