Húha! Hélt einhver að súpertilboð út í heim heyrðu sögunni til vegna Kófsins? Aldeilis ekki 🙂

Nýja-Delí er kjaftfull af forvitnilegum hlutum og þangað kjörið að skottast fyrir lítið með vorinu.

Nú er komist alla leið til Nýju-Delí á Indlandi og heim aftur gegnum Holland í vor og fram á næsta sumar fyrir svo lítið sem 80 sundkalla á kjaft. Þú sundkalla 😉 Það er príma tilboð á öllum tungumálum ef þú spyrð okkur.

Hið þýska Lufthansa og svissneska Swiss Air bjóða þessa dagana flug fram og aftur til indversku borgarinnar frá Amsterdam niður í 50 þúsund kall. Bætum ofan á það flug héðan til hollensku borgarinnar, sem fæst ódýrast kringum 30 þúsund krónur á sardínufarrými, og við komin með annan fótinn til Nýju-Delí næsta vor eða sumar.

Víst er um millilendingu að ræða en við erum að tala um Amsterdam og ef þér leiðist þar máttu bara vera heima hjá þér.

Nánar á vefjum Lufthansa, FlySviss og Icelandair. Áhugasamir þurfa að leita uppi réttu fargjöldin hjá hverjum og einum aðila fyrir sig. Það kostar smá tíma en margborgar sig fjárhagslega.

Svo er kjörið að fá gistingu í Nýju-Delí á botnverði hér að neðan 🙂