Á Spáni er gott að djamma og djúsa eins og segir í laginu og má til sanns vegar færa svona almennt. Ekki hvað síst á Costa del Sol við Miðjarðarhafið og ekki er Algarve í Portúgal síðri. En við erum mögulega síðasta kynslóðin sem kemur til með að njóta þessara sólarparadísa.

Svona gæti Costa del Sol litið út eftir aðeins 60 ár…

Loftslagsvísindamenn við háskólann í Marseille í Frakklandi spá því að eftir 60 til 100 ár verði Algarve, Costa del Sol og jafnvel eyjur á borð við Sikiley og Möltu næsta gróðurlausar og jafnvel hreint og beint eyðimerkur á borð við Sahara. Og enginn er mikið að spássera um eyðimerkur í sumarfríum.

Samkvæmt nýjustu loftslagslíkönum þykja yfirgnæfandi líkur á að Atlantshafsstormar, sem oft og ítrekað færast inn á Miðjarðarhafssvæðið með tilheyrandi nauðsynlegri úrkomu, færist töluvert norðar á næstu áratugum sem auðvitað þýðir enn minni úrkomu við Miðjarðarhaf. Og er úrkoma þar þó lítil fyrir.

Það merkir hreint og beint að sá litli gróður sem þó finnst enn á við suðurströnd Spánar, Portúgals, Ítalíu, Grikklands og annarra landa sem liggja við Miðjarðarhafið mun deyja drottni sínum. Og þar sem ekkert er vatnið verður fólkið að flytja líka nema einhverjar stórkostlegar framfarir í vatnsframleiðslu eigi sér stað á næstu áratugum.

Óvitlaust að hugsa út í þetta næst þegar þú flatmagar í Marbella eða Sagres meðan krakkarnir busla í sjávarmálinu brosandi út að eyrum. Allt í heiminum er hverfult.