Indversk stjórnvöld hafa gripið til þess ráðs að vara erlendar konur sem ferðast ætla um landið að klæðast þunnum, stuttum kjólum eða pilsum. Þá ættu þær konur sem ferðast einar ekki að fara út eftir myrkur.

Ekki ögra heimamönnum eru skilaboð indverskra stjórnvalda til kvenkyns ferðalanga. Mynd GqonNew
Slíkur klæðaburður þykir helst til ögrandi meðal þarlendra karlmanna margra en undanfarin ár hafa ítrekað heyrst sögur af hryllilegum nauðgunum á ferðalöngum og á köflum fjöldanauðgunum. Þó minna fari fyrir slíkum fregnum nú en áður koma slík mál engu að síður reglulega upp í landinu.
Yfirvöld standa ráðþrota eins og ofangreind viðvörun ber með sér. Það næsta kjánalegt að setja samasemmerki milli klæðnaðar kvenmanna annars vegar og ills vilja einhverra karlkyns hrotta. Enda snýr þetta ekki eingöngu að erlendum konum. Nauðganir risavaxið vandamál alls staðar hér í landi.
Þess utan er ekki mjög auðvelt að flakka um Indland víða án þess að fækka fötum eins og hægt er. 40 stiga hiti er normið í stöku fylkjum Indlands og hitamollan óþolandi víða um landið.







