Innan tíðar hætta bæði Primera Air og Wow Air áætlunarflugi sínu frá Keflavík til Alicante á Spáni fram til vors og þá er fokið í flest skjól hvað varðar að komast beint á sæmilegu verði í einhvern yl á erlendri grundu yfir kaldasta tímann á Fróni. En ekki öll skjól þó.

Við getum farið allt sem við viljum á fínu verði ef við látum okkur hafa smá vesen gott fólk.

Við getum farið allt sem við viljum á fínu verði ef við látum okkur hafa smá vesen gott fólk.

Norska lággjaldaflugfélagið Norwegian er eitt þeirra sem okkur gæti bjargað svona ef nauðsyn liggur við. Þó með þeim formerkjum að bóka núna strax og eins langt fram í tímann og mögulegt er. Með þeim hætti er ekki aðeins Alicante í boði á rétt rúmlega 30 þúsund krónur fram og aftur heldur og staðir á borð við Barcelona, Madríd, München og Genf.

Það er nefninlega svo að Norwegian var að hefja enn eina „supersalg“ sem þeir svo kalla og lækkar þá verð á allnokkrum áfangastöðum enn meira en venjulega.

Stikkprufur Fararheill í janúar, febrúar og mars leiða í ljós að alla þá mánuði er hægt að komast til ofangreindra staða gegnum Osló með Norwegian allt niður í 34 þúsund krónur fram og aftur. Algengt verð til Osló og heim aftur er 18 þúsund krónur miðað við gengi dagsins og flugið til Spánar og aftur fæst niður í 14 þúsund alls.

Vissulega þreytt fyrir suma að millilenda í Osló og í einhverjum tilfellum þarf kannski að dvelja þar nótt. Sömuleiðis er enginn farangur meðferðis en á móti kemur að hér er þó leið til að spássera á spænskri ströndu á svipuðu verði og þykir mjög ódýrt í beinu flugi héðan frá Íslandi. Til samanburðar kostar flug aðra leið til Alicante með flugfélagi fólksins, Wow Air, þegar flug þangað hefst að nýju í lok mars 39.900 krónur. Önnur leiðin með þeim því mun dýrara en fram og aftur með Norwegian. Ekki þarf að ræða sparnaðinn af þessu ef heila fjölskyldan ætlar í ferðina.

Hraða þarf að hafa. Supersalg er aðeins í boði til 6. október og ferðast verður milli október og apríl.

Vefur Norwegian hér.