Markaðsfræðingar eru merkilegir. Þá munar ekkert um að beygja og breyta hefðum og stöðlum ef það hentar. Þannig eru til komin nokkur hótel heimsins sem flokka sig sem sex stjörnu.

Waldorf Astoria Ras al Khaimah er eitt af fáum sex stjörnu hótelum heims.

Waldorf Astoria Ras al Khaimah er eitt af fáum sex stjörnu hótelum heims.

Það á auðvitað að gefa til kynna að lúxusinn í boði sé meiri og merkilegri en gengur og gerist hjá hótelum sem „aðeins“ eru fimm stjörnu.

Í einhverjum tilfellum kann það að vera rétt en slíkt býður upp á misnotkun því hvað gerist þegar næsti miljarðamæringur telur sitt nýjasta hótel betra en sex stjörnu hótelin?

Eins og gefur að skilja er það ekki aldeilis gefið að leggjast til svefns á slíkum hótelum en endrum og sinnum býðst slíkt á verði sem er verulega undir hefðbundnum prís.

Það er einmitt eitt slíkt sem þýska ferðaskrifstofan BigXtra er að bjóða þessa stundina frá Þýskalandi. Verði maður sér úti um ódýrt flug þangað þennan veturinn getur sá hinn sami bókað Dúbai ferð þeirrar ferðaskrifstofu þar sem um er að ræða vikuferð og einmitt gist á einu af fáum sex stjörnu hótelum heims. Það heitir Waldorf Astoria Ras al Khaimah og er staðsett í um 50 mínútna fjarlægð frá Dúbai borg. Flug með Emirates og allar ferðir til og frá innifaldar. Ekki nóg með það heldur er hálft fæði í boði líka og það munar sannarlega um það á rándýrum hótelum.

En BigExtra hefur tekist að kreista duglegan afslátt og ferðin frá nokkrum stöðum í Þýskalandi fæst niður í 87 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman. Fyrir flugið eitt og sér er það bærilegt verð en fyrir flugið plús gistingu í mesta lúxus sem finnst er þetta verð einn öskrandi brandari. Jafnvel þó inn í dæmið sé bætt 30 til 40 þúsund krónum á mann fyrir flugið til Þýskalands og heim aftur er þetta ennþá fjandi gott tilboð. Eða hvað finnst þér?

Allt um málið hér (á þýsku).