Sennilega hefur enginn tekið eftir því en langt er nú liðið á árið 2014 og ekki einu sinni þetta árið hefur Icelandair boðið upp á hraðtilboðsverð til Orlando á Flórída eins og þó var af og til í boði hér áður.
Sem kunnugt er er flug til Orlando eina beina áætlunarleiðin í sól og sælu héðan frá Íslandi yfir hávetrartímann að frátöldum Kanaríferðum. Eðlilega vilja sem flestir hafa sem minnst fyrir slíkum ferðum. En það kostar drjúgt ef engin eru tilboðin og hefur hækkað verulega á örfáum árum.
Dæmi um þetta má finna á vef Icelandair núna.
Eitt af þeim hausttilboðum sem þar finnast er fjögurra nátta ferð til Orlando á tilteknum dagsetningum í vetur. Þar gist á sæmilegu hóteli og tilboðsverðið hljóðar upp á 96.900 krónur á mann miðað við tvo.
Sannarlega mun betri pakki en aðeins flugið því það fæst í vetur vart undir 80 til 90 þúsund krónum á mann. Hótelið er því næsta frítt sé miðað við flugið eitt og sér.
En ef við spólum aðeins til baka ein þrjú ár eða svo og skoðum sams konar fjögurra nátta Orlando tilboð Icelandair kemur dálítið merkilegt í ljós. Veturinn 2011 gátu áhugasamir flogið til Orlando og gist á sambærilegu sæmilegu hóteli á svipuðum slóðum fyrir 69.900 krónur á mann miðað við tvo saman.
Ferðin atarna hefur því hækkað um 27 þúsund krónur á mann eða 54 þúsund alls fyrir par eða hjón á þremur árum eða svo. Það er hvorki meira né minna en 40% hækkun á mann.
Þetta vekur upp spurningar þegar litið er til eldsneytisverðs sem er að frátöldum launakostnaði mesti útgjaldaliður flugfélaga. Samkvæmt IATA var flugvélaeldsneytið nefninlega á svipuðu verði og það er í dag. Jafnvel eilítið dýrara þá ef út í það er farið.
Sömuleiðis er íslenska krónan sterkari í dag en hún var árið 2011 og ekki hefur verð á gistingu í Flórída hækkað á þessum tíma. Fyrir utan þá staðreynd að hagnaður og hagur flugfélagsins hefur snarbatnað á þessum tíma líka.
Miðað við ofangreindar upplýsingar er vandséð hvað réttlætir 40 prósenta hækkun á fargjöldum til Flórída.









