Tíðindi

Alicante á 14.900 með Wow Air

  04/10/2012desember 25th, 2013No Comments

Síðustu forvöð fara að verða á að sleikja sól við Miðjarðarhafið áður en vetur konungur sest þar að líka með tilheyrandi kulda og trekk. Wow Air býður til miðnættis flug aðra leið til Alicante út þennan mánuð á 14.900 krónur.

Tilboðsverð Wow tekur reyndar ekki til farangurs farþega og því hækkar þetta verð aðeins þurfi farþegar að taka mér sér nærbrækur og tannbursta og annað nauðsynlegt.

Engu að síður er komist þennan mánuðinn í skínandi hita og sól fyrir lágt verð og ef marka má hið fornkveðna að gott sumar viti á harðan vetur er ekki vanþörf á því.

Heimasíða Wow Air hér.