Tíðindi

Ferðast frítt um Nýja-Sjáland í níu vikur

  02/10/2012No Comments

Einhvern tíma langað að gera eitthvað villt og galið? Kannski er tækifærið núna því ríkisflugfélag Nýja-Sjálands, Air New Zealand, ætlar að bjóða fjórum einstaklingum til þessa stórfenglega lands í heilar níu vikur og það algjörlega frítt.

Fjallstoppar og frumskógar og allt þar á milli. Níu vikur á níu bestu gönguleiðum um Nýja-Sjáland hljómar æði spennandi.

Það þýðir reyndar ekki að þeir heppnu geti hoppað á næstu strönd og slakað á sötrandi bjór heldur verða þeir að ganga allar níu vinsælustu gönguleiðirnar í landinu og nota eina viku í hverja og eina.

Þeir kalla þetta The Great Walker Competition og er fyrst og fremst ætlað þeim sem eru í góðu gönguformi því flestar gönguleiðirnar sem um ræðir taka helvítlega á þátttakendur. Í þokkabót eru einnig annars konar ævintýri á leiðinni en alls eru leiðirnar níu 550 kílómetrar að lengd.

En ekki er til betri leið til að kynnast þessu undursamlega fallega landi sem að mörgu leyti minnir um margt á Ísland.

Allt er greitt á meðan förinni stendur og flug er innifalið hvar sem vinningshafar eru niðurkomnir í veröldinni. Hreint ekki til lítils að vinna eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi. Skráning verður að berast fyrir 22. október hér.