Allir sem með tæknimálum fylgjast vita að Apple gerði feitt í brók fyrir skömmu þegar fyrirtækið opinberaði sín eigin kort fyrir notendur Apple tækja og hentu út í staðinn kortum frá samkeppnisaðilanum Google.
Flýtirinn var svo mikill að kortin sem Apple hannaði eru mörg hver töluvert röng og það ótrúlega röng á köflum eins og sjá má á myndunum hér að neðan.
Vestanhafs er mikið talað um þessa kollsteypu Apple sem sérstaklega er þekkt fyrir að framleiða ekkert sem ekki er fullkomið eða því sem næst. En nokkuð langur vegur er þangað til kort Apple veita sömu eða betri upplýsingar en kort Google gera nú þegar ef marka má tæknitröllin. Ekki síst vegna þess að kort Apple eru útbúin með upplýsingum frá 24 mismunandi aðilum.
Ritstjórn vill þó brýna fyrir fólki að hengja ekki allt sitt á kort Google heldur. Margvísleg dæmi eru um að kort þeirra af afviknum stöðum eru komin til ára sinna og gefa því heldur ekki rétta mynd af stöðum í heiminum.
Vefmiðillinn Weknowmemes hefur tekið saman nokkur dæmi um ruglið í Apple. Sérstaklega er skemmtilegt að sjá að Stokkhólmur hefur færst nokkuð til.











