Eftir sex daga eða svo hættir Iceland Express að fljúga reglulega til Barcelóna á Spáni og býður lokaferðir sínar á aðeins 18.900 krónur. Sömuleiðis fæst nú far til Berlínar út þennan mánuð á 15.700 krónur aðra leið með sköttum.

Til hádegis á morgun er hægt að kaupa flug aðra leið til Barcelóna á 18.900 krónur. Það er allra síðasti sjéns á þessu ári með Iceland Express.
Eru það sorgardagar sem í hönd fara nú þegar Wow Air, Iceland Express og Icelandair breyta úr sumaráætlun í vetraráætlun en þar með fækkar verulega áfangastöðum í boði héðan og ferðum öðrum fækkar.
Enn er líf í tuskum í Barcelóna þó vetur banki nú upp á þar eins og annars staðar í Evrópu. Margir gætu alveg hugsað sér tvo til þrjá daga þar með litlum fyrirvara og nú er aldeilis tækifærið.
Flugið á þessu verði er aðeins í boði til hádegis á morgun, miðvikudag.







