Svo fór um flugferð þá. Air Iceland Connect, áður Flugfélag Íslands, hefur pakkað saman til Evrópu. Heiðarleg tilraun en endalokin fyrirséð að mestu.

Tilraun út í sandinn og það eðlilega að okkar mati. Mynd Flugfélag Íslands
Skýrt var frá því í vikunni sem leið að Air Iceland Connect ætlar að hætta öllu flugi sínu til Evrópu enda of takmarkað upp úr því að hafa. Leiðinlegt fyrir þetta dótturfyrirtæki Icelandair en ekki alls kostar ófyrirséð.
Þetta merkir að þú kemst ekki mikið lengur til Aberdeen í Skotlandi eða Belfast á Norður-Írlandi með Bombardier-vélum Air Iceland Connect en flug til beggja staða hefur verið í boði í tæpt ár eða svo frá Keflavík.
Hvað fór úrskeiðis hjá þrautskóluðum sérfræðingum Icelandair/Air Iceland Connect?
Við ætlum ekki að fullyrða neitt enda engir sérfræðingar hér. En grein okkar hér frá desember 2016 gefur vísbendingar. Það er næsta ómögulegt að bjóða fólki lélegri vöru (smærri vélar, lengri flugtími) en heimta samt seðla eins og þú sért að bjóða himinn og haf og skemmtilega flugþjóna með. Fólk er jú ekki fífl.
Sú grein átti við um flugið til Belfast, sem nota bene, okkur finnst frábær í flesta staði. Hvað varðar að hætta flugi til Aberdeen gildir dálítið annað. Þrjú flugfélög hafa verið að bjóða flug til Skotlands, Edinborg og Glasgow, með þotum og það á hreint ágætu verði síðustu árin. Hvers vegna fljúga til krummaskuðs í sama landi með smárellu sem kostar jafnvel meira en með þotunum hjá hinum?
Fleira kemur eflaust til. Brexit er ekki að hjálpa. Bretar hafa snardregið úr ferðalögum undanfarið því gengi punds gagnvart evru og öðrum helstu gjaldmiðlum hefur daprast jafnt og örugglega eins og gengi Arsenal í enska fótboltanum.
Annað er að Bombardier-rellurnar eru ekki skemmtilegasti ferðamáti heims. Við hér flogið með slíkum gripum allnokkrum sinnum. Sleppur fínt í klukkustund eða tvær en lengur en það er flugið orðið erfitt. Ekki bara útaf þrengslum heldur og eru vélarnar tiltölulega léttar og varla þarf hnerra frá farþega um borð til að finna til ókyrrðar.
Að þessu sögðu er kúdos á Air Iceland Connect fyrir tilraunina. En það er með flug eins og annað í lífinu; hugsa verður hlutina til enda.







