Að frátöldum fallegustu stöðum okkar eigin lands (og stöku stöðum öðrum) er fátt sem sendir fleiri unaðsbylgjur niður hrygg og súlu en að skoða myndir af hinum einstöku Maldíveyjum í Indlandshafi. Nú er sannarlega dauðafæri að heimsækja eyjurnar á botnverði.

Finnist einhvers staðar raunverulega “hið ljúfa líf“ eru Maldíveyjar klárlega við toppinn. Mynd Picstame
Eina slík slefmynd má sjá hér til hliðar en fyrir ókunnuga eru Maldíveyjur samheiti klasa yfir eitt þúsund kóraleyja um þúsund kílómetra til suðurs af Srí Lanka.
Almennt ekkert rosalega auðvelt að heimsækja eyjarnar og jafnvel þegar það er í boði hefur það kostað mun drjúgari skilding en á öðrum vinsælum sólardvalarstöðum heims. Stór hluti ástæðunnar sú að hér eru nánast eingöngu fimm stjörnu hótel í boði og ekki óalgengt að punga þurfi út hálfri milljón til einnar milljónar króna til að eyða viku eða tveimur á flottustu stöðunum hér. Þar aðeins verið að tala um prísinn fyrir gistinguna. Ofan á það kemur langt flug og ofan á það sú staðreynd að í mörgum tilfellum þarf töluvert langa setu í hraðbátum að flugi loknu til að komast til hinna og þessara áfangastaðanna á hinum og þessum eyjunum. Þetta ekkert svo einfalt.
Fyrir utan eitthvert yndislegasta loftslag í veröldinni og einhvern tærasta sjó sem opin augu geta litið eru líklega fáir sólarstaðir aðrir á jarðarkringlunni sem sannarlega veita þetta dolce vita, ljúfa líf, sem allir aðrir áfangastaðir heims monta sig af en standa ekki undir þegar á hólm er komið.
Það stór orð og lesandi kann að spyrja hvað við meinum við því. Ja, hvað ferðamenn snertir eru glæpir á eyjunum nálægt núll prósentum enda ekki hlaupið að því að flýja burt með ránsfeng neins staðar. Glæpir þó smámunir miðað við skordýr og vibba sem herjar á okkur víða annars staðar þar sem sólin skín glatt 365 daga á ári. Hér vissulega skordýr og í sjónum má sjá ýmsar skepnur sem kannski er ekki gáfulegt að knúsa mikið en hér er fólk að mestu alveg laust við leiðindi á borð við moskítóflugur, mý, rottur, köngulær og aðrar þær lífverur sem geta gert dvöl annars staðar mun verri en ella.
Mergur málsins þó sá að nú komast áhugasamir til Maldíveyja og geta gist þar á töluvert vægara verði en gengur og gerist. Orsökin sú að margar þjóðir heims vara nú þegna sína við ferðalögum til Maldíveyja.
Það hljómar vissulega illa en hér sá hængur á að viðvörunin gildir einungis sökum pólitískra deilna hjá stjórnvöldum innanlands en tekur næsta lítið til ferðalanga og snertir þá lítið sem ekkert. Nautheimskur og spilltur forseti landsins hefur látið fangelsa nokkra æðstu dómara landsins fyrir að vera sér ekki sammála í einu og öllu. Það á hins vegar ekki að koma á óvart því Maldíveyjur eru bananalýðveldi í stjórnmálalegu tilliti.
Lætin í forsetanum og viðvaranir erlendra ríkja hafa á glettilega skömmum tíma valdið hruni í ferðamennsku hér og í landi þar sem ferðamennska er nánast númer eitt í efnahagslegu tilliti eru það dómsdagsfréttir og allir ferðaþjónustuaðilar bregðast við með verðslátrun eins og sjá má á dæmunum hér til hliðar sem tekin voru af handahófi á hótelbókunarvef Fararheill. Verð á gistingu á Maldíveyjum næstu mánuðina virðist hafa lækkað yfir línuna um 30 – 90 prósent á augabragði.
Sem sannar hið fornkveðna: Eins hrun er annars brauð 🙂
Hvernig er svo best komist til Maldíveyja?
Ýmsar leiðir færar. Vilji fólk öryggi er óvitlaust að bóka gegnum þekktari ferðaskrifstofur í Evrópu sem margar bjóða túra til Maldíveyja jafnvel þó viðvörun sé í gangi. Við hér mælum þó með að negla gistinguna gegnum hótelvef okkar, kaupa flug gegnum Evrópu til Srí Lanka og þaðan kaupa flug til Maldíveyja. Lausleg úttekt leiðir í ljós að frá Þýskalandi má finna fargjöld fram og aftur til Colombo á Srí Lanka næstu mánuðina niður í 50 þúsund krónur á haus og frá Srí Lanka er minnsta mál að kaupa flug fram og aftur niður í 25 þúsund kall til Maldíveyja.







