Líklega eru ekki mjög margir að velta fyrir sér haust- og vetrarferðum svo snemma sumars. En eigi fólk nokkra seðla á bók sem safna meira ryki en vöxtum er óvitlaust að kíkja á æði góða þriggja vikna ferð Heimsferða til Benídorm í október.

Háannatími á strönd Benídorm en þetta er ekki raunin í október.
Þar er um að ræða svokallaða heldriborgaraferð og gist á fjögurra stjörnu Melia Benidorm í 21 nótt með hálfu fæði. Næstu dagana er sérstakur auka bókunarafsláttur í boði fyrir þessa ferð sem hefst þann 2. október. Það merkir að ferðin er þín miðað við tvo saman fyrir aðeins rúmar 210 þúsund krónur á mann eða 421 þúsund samtals á parið.
Það er ekki slæmur díll svona miðað við það sem gengur og gerist. Tíminn frábær því hér má lengja sumarið verulega án þess að fá sólsting og stikna úr hita í hvert sinn sem farið er út undir bert loft. Hægt er að færa góð rök fyrir að október sé einn allra besti mánuðurinn til að njóta Spánar.
Svo sjáum við ekki nein merki þess að gefa þurfi upp kennitölu eða aldur við bókun svona ef einhverjum af yngri kynslóð finnist þetta spennandi tilboð. Bóka bara og mæta svo út á völl með staf svona til öryggis 😉







