Það er sennilega kominn tími til að sparka í nokkra rassa í Leifsstöð. Þar hefur víst aldrei verið betra að eyða tíma sínum; betra pláss, flottari verslanir og meira vöruúrval samkvæmt viðamikilli auglýsingaherferð flugvallarins. En fátt af þessu stenst mjög vel skoðun.

Flott kynning annars vegar og svo raunin hins vegar. Mynd Skjáskjot/Ruv/IBS
Það má heita með ólíkindum upphæðirnar sem Leifsstöð er að henda út í auglýsingaherferð sína þessi dægrin. Nýbúið að flikka aðeins upp á pleisið og þá er tugmilljónum hent í kynningar í fjölmiðlum. Líkt og það sé virkilega einhver þarna úti sem gerir sér ferð út í heim til þess eins að „njóta lífsins“ í Leifsstöð!!!
Verst er kannski að fátt stenst við digurbarkalegar yfirlýsingar um bót og betrun. Í fyrsta lagi er athyglisvert að þjónustan hefur ekkert batnað. Þar starfar ennþá fólk í láglaunastörfum á mjög löngum vöktum. Fólk sem eðlilega hefur ekki orku til að brosa út í eitt tuttugu og fjóra sjö.
En betra pláss? Það stenst þó allavega eða hvað? Jú, það stenst ef þú ert að kaupa vörur. Með öðrum orðum þá eru sæti í nýjum veitingasölum flugstöðvarinnar ætluð viðskiptavinum en ekki til að Jón og Gunna geti hvílt lappir augnablik áður en flogið er til Glasgow þar sem verðlag úti á götu er svipað eða lægra en í Leifsstöð. Þeir sem eru að spara sína seðla fyrir útlönd eru í raun ekki með meira eða betra pláss en áður.
Þá stenst fullyrðingin um betra pláss ekki heldur á annatímum sem er reyndar nánast daglega á ákveðnum tímum dags. Flugstöðin er svo pökkuð að bið í innritun í flug getur tekið allt að klukkustund, biðraðir í öryggisleit vel rúman hálftíma og þegar þú loks kemst inn í flugstöðina sé ekki til gólfs vegna mannfjölda. En kannski eru Leifsstöðvarmenn bara að meina „betra pláss“ ef þú ert einn af fjórum að fljúga til Úkraínu klukkan 02:30 um nóttina með Air Chernobyl. Þá stemmir þetta allt ef frá er talið að margar verslanirnar eru lokaðar.
Verslanirnar eru svo annar kapítuli. Stórverslun 10/11 fær mikið pláss. Það mun vera sama verslunarkeðja og er yfirleitt 50 til 80 prósent dýrari en aðrar matvöruverslanir í landinu. Er það gott mál? Penninn-Eymundsson er líklega dýrasta bókabúð landsins og ekki er að sjá að verðlag í Leifsstöð sé lægra en í öðrum verslunum þeirra hér. Er það gott mál? Og hvað með tískuverslunina Airport Fashion eða matstaðinn Pure Food Hall. Er þetta ekki íslensk flugstöð? Rekur Siggi Hall Pure Food Hall? Ef ekki, er þetta þá skyldmenni hans eða klíkuskapur? Gengur einhver í flugstöðvartísku? Nafnið jafn kjánalegt og hugmyndin að viti borið fólk sé almennt að tékka á heitustu tískuvörunum í Leifsstöð í Keflavík á Íslandi.
Þetta er sem sagt allt saman litlu betra en það var þrátt fyrir tugmilljóna markaðsherferð.







