Ferðaskrifstofan Heimsferðir blæs til Tyrklandsveislu næsta sumarið þegar boðið verður upp á beint flug til Bodrum yfir sumarmánuðina. Ferðaskrifstofan auglýsir nú ferðir sínar þangað með 20 þúsund króna afslætti á mann sé bókað fyrir 10.desember.
Það er óvenju vænn afsláttur miðað við það sem gerist og gengur og þarf ekki mörg orð að hafa um að fjögurra manna fjölskyldur eða stærri spara sér þannig um og yfir hundrað þúsund krónur.
Við reyndum að sprengja þessa blöðru Heimsferða með því að finna ódýrari kosti í beinu flugi en það tókst einfaldlega ekki.
Þó aðeins meðan Heimsferðir bjóða umræddan 20 þúsund króna afslátt á mann.
Þann 11. desember þegar því tilboði sleppir kemst fjölskyldan töluvert ódýrara frá tveggja vikna Tyrklandsferð með öllu inniföldu með því að bóka aðeins flugið hjá Heimsferðum en græja gistingu á eigin spýtur.
Það getur fólk skoðað og gengið úr skugga um sjálft á hótelbókunarvef Fararheill inni í vegvísi okkar um Bodrum. Þó skal alltaf hafa í huga að mun meiri og ítarlegri tryggingar gilda um alferðir ferðaskrifstofanna en þær ferðir sem fólk skipuleggur sjálft.
En svo er spurning hvort Heimsferðir hætta sölu flugs eingöngu þegar tilboðinu lýkur. Það verður að koma í ljós en á þessari stundu er mögulegt að kaupa far fram og aftur eins og hér sést að neðan:









