Það er ekki á hverjum degi sem lúxushótel gefa nokkurn skapaðan hlut en kemur þó fyrir. Nú er hótelkeðjan Leading Hotels of the World sem meðal annarra danska lúxushótelið D´Anglaterre tilheyrir að bjóða tvær nætur fríar þegar gist er í heila viku.
Vissulega ekki á allra færi að dvelja í umræddum hótelum enda meðalverð á nótt í betri kytru um eða yfir hundrað þúsund krónur.
En á stundum er kannski ástæða til að leyfa sér eins og í brúðkaupsferðum, stórafmælum eða öðrum tyllidögum í lífi fólks.








