Tíðindi

Skíðapassarnir ekki ókeypis

  25/10/2010október 25th, 2021No Comments

Það er með nokkrum eindæmum hversu sjaldan þær ferðaskrifstofur sem auglýsa skíðaferðir hérlendis láta oft hjá líða að lista verð á skíðapössum sem eru jú nauðsynlegir ætli fólk sér á skíði eða bretti í skíðaferðum.

Könnun Fararheill.is leiðir í ljós að aðeins Vitaferðir og GB Ferðir tiltaka einhver skíðapassaverð í ferðum sínum. Vita þó aðeins að hluta til og GB Ferðir linka á erlenda síðu

Úrval Útsýn og Heimsferðir eru hins vegar sek um að sleppa því alfarið í auglýsingum sínum að minnast á verð á dagpassa í brekkurnar þó reyndar megi finna á heimasíðu þeirra fyrrnefndu tengil á verðskrá á ensku. Miðað við að skíðapassar í fyrsta flokks brekkur eru tiltölulega dýrir væri það góð þjónusta og reyndar lágmarksþjónusta að láta þess getið við auglýsingar sínar að mati ritstjórnar Fararheill.is. Þá virkar ekki linkur ÚÚ á verðlista vegna Selva Val Gardena svo fólk þarf sjálft að fara að leita.

Nema Fararheill.is gerði það fyrir þig.

* Verð miðast við tímaramma auglýstra ferða.

Madonna di Gampiglio

  • Dagspassi fyrir fullorðna: 5.500 krónur
  • Dagpassi fyrir börn og unglinga: 2.700 krónur

Selva Val Gardena

  • Dagspassi fyrir fullorðna: 6.000 krónur
  • Dagspassi fyrir unglinga: 4.200 krónur

Val di Fiemme

  • Dagpassi fyrir fullorðna: 6.000 krónur
  • Dagpassi fyrir unglinga: 4.200 krónur

Flachau

  • Dagspassi fyrir fullorðna: 6.400 krónur
  • Dagspassi fyrir unglinga: 5.200 krónur

Lungau

  • Dagspassi fyrir fullorðna: 5.700 krónur
  • Dagspassi fyrir ungling: 4.800 krónur

Whistler

  • Dagspassi fyrir fullorðinn: 10.100 krónur