Tíðindi

Golfferðirnar mun ódýrari frá Danmörku

  06/10/2010júní 1st, 2014No Comments

Ódýrustu vikulöngu golfferðirnar hjá íslenskum ferðaskrifstofum þennan októbermánuð eru á 160 þúsund krónur og uppúr samkvæmt lauslegri úttekt Fararheill.is. Sams konar úttekt hjá einni einustu ferðaskrifstofu í Danmörku leiðir í ljós að vikugolf á mann kostar frá 110 þúsund krónum. Er þá jafnvel innifalinn bílaleigubíll alla vikuna.

Margir íslenskir kylfingar láta verða af ferðum til Spánar í september eða október þegar golftíðin heimafyrir er að líða undir lok. En margir sitja einnig heima sökum kostnaðar enda fer enginn einn í golf og fari hjón saman í vikuferð er afar hæpið að kostnaður verði undir 300 þúsund krónum fyrir slíka ferð.

Þó velflestir greiði aukalega fyrir beint flug á áfangastað er verðmunur á ferðum hérlendis og dönsku ferðaskrifstofunni Classic Golf verulegur og séu margir að fara í einu er engin spurning að hópurinn sparar sér umtalsverðar upphæðir jafnvel þótt punga þurfi út fyrir ferð til Kaupmannahafnar eða Billund í þokkabót.

Ekki aðeins eru ferðir Classic Golf svipaðar þeim sem þær íslensku bjóða á flestan hátt heldur er undantekningarlítið einnig í boði bílaleigubíll og frír aðgangur að heilsulindum þeirra hótela sem gist er á. Engu að síður eru verðin fyrir vikupakka á mann með flugi frá Danmörku frá 112 þúsundum og upp í 122 þúsund.

Sparar þannig fjögurra manna hópur sem kaupir ódýrustu ferð frá Kaupmannahöfn í stað ódýrustu ferðar héðan 48 þúsund krónur á mann eða tæplega 200 þúsund á allan hópinn. Viðkomandi koma út í plús jafnvel þótt fullt verð sé greitt fyrir flugið til Danmerkur. Munurinn er enn meiri séu dýrari ferðirnar valdar.