Rúmar tvær vikur eru síðan allir miðar á hina vinsælu tónlistarhátíð Iceland Airwaves kláruðust samkvæmt heimasíðu hátíðarinnar. Það virðist ekki hafa nein áhrif á auglýsingar aðalstyrktaraðila hátíðarinnar, Icelandair, sem auglýsir enn í Noregi ferðir á hátíðina. Fer hún fram 13.-17. október.
Um er að ræða sértilboð á hátíðina fyrir Norðmenn og er miði innifalinn í pakkaferðinni. Ódýrast er að kaupa aðeins flug og miða á hátíðina samkvæmt vef Icelandair á norsku. Kostar það 47.519 krónur sem verður að teljast ansi gott verð miðað við að miðinn á IE kostar fimmtán þúsund.
Ljóst er þó að enn lumar Icelandair enn á fjölda miða nema gleymst hafi að uppfæra heimasíðu félagsins.






