Tíðindi

Eiffel turninn, Notre Dame voru skotmörkin

  04/10/2010júní 1st, 2014No Comments

Heimurinn væri menningarlega snöggtum fátækari ef Eiffel turninn, Notre Dame kirkjan, Alexanderplatz turninn og Adlon lúxushótelið við Brandenborgarhliðið hyrfu af yfirborði jarðar í einni svipan. Þetta voru, og eru mögulega ennþá, skotmörk hryðjuverkamanna sem leyniþjónustur á vesturlöndum hafa varað við síðasta sólarhringinn.

Enn eru í gildi viðvaranir til ferðamanna að fara með gát þessi dægrin enda ekki útséð um að tekist hafi að koma í veg fyrir hryðjuverkin þó hópur sem grunaður er um að skipuleggja hryðjuverk hafi náðst í Hamborg í dag.

En þótt viðvaranir af þessu taginu séu næsta marklausar þegar ekki fylgir opinberlega hvaða staði hryðjuverkamenn hafa í sigti sínu er ástæða til að vera á varðbergi og æða ekki alveg á næstunni upp í turn Eiffels í París né gista á Adlon í Berlín. Og jafnvel vera ekkert að þvælast í grenndinni ef einhvers konar skotárásir er hugmyndin en ekki sprengjur.